Arion banki: Útboð sértryggðra skuldabréfa þann 6. mars 2024.
Arion banki heldur útboð á sértryggðu skuldabréfaflokkunum ARION CBI 30 og ARION CB 27 miðvikudaginn 6. mars 2024.
Útboðið verður með þannig fyrirkomulagi að öll samþykkt tilboð verða seld á sama verði, á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokksins ARION CB 24 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum í ofangreindu útboði. Hreint verð í skiptiútboðinu er 99,6985.
Áætlaður uppgjörsdagur er 13. mars 2024. Greiða skal fyrir flokkana með reiðufé og/eða með skiptum á ARION CB 24.
Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á netfangið [email protected] fyrir kl. 16:00 þann 6. mars 2024.