Arion banki: Skýrsla tilnefningarnefndar og upplýsingar um frambjóðendur
Börskollen - Aktier, fonder och ekonominyheter

Börskollen

För dig med koll på börsen

Pressmeddelande

Arion banki: Skýrsla tilnefningarnefndar og upplýsingar um frambjóðendur

Aðalfundur Arion banka hf. verður haldinn í höfuðstöðvum bankans að Borgartúni 19, 105 Reykjavík, þann 13. mars 2024 kl. 16:00. Einnig verður gefinn kostur á rafrænni þátttöku. Fundurinn fer fram á íslensku, en boðið verður upp á túlkaþjónustu á ensku. Tímafrestur hluthafa til að skrá sig á fundinn rennur út kl. 16:00 þann 12. mars 2024. Mikilvæga tímafresti fyrir eigendur SDR heimildarskírteina ásamt nánari upplýsingum og leiðbeiningum er að finna á vefsíðu bankans, www.arionbanki.is/gm.

Tilnefningarnefnd Arion banka gegnir ráðgefandi hlutverki þegar kemur að kjöri til stjórnar bankans. Á þeim hluthafafundum þar sem kjör stjórnarmanna er á dagskrá leggur nefndin fram rökstuddar tillögur varðandi þá frambjóðendur sem hún telur best til þess fallna að taka sæti í stjórn bankans. Nánari upplýsingar um hlutverk tilnefningarnefndar og starfsreglur nefndarinnar má finna á vef Arion banka.

Eftirtaldir aðilar hafa tilkynnt um framboð til stjórnar Arion banka:
·       Gunnar Sturluson
·       Guðrún Johnsen
·       Kristín Pétursdóttir
·       Liv Fiksdahl
·       Paul Horner
·       Peter Franks
·       Steinunn Kristín Þórðardóttir


Tilnefningarnefnd leggur til að eftirfarandi aðilar verði kjörnir í stjórn bankans:
·       Gunnar Sturluson
·       Kristín Pétursdóttir
·       Liv Fiksdahl
·       Paul Horner
·       Steinunn Kristín Þórðardóttir


Tilnefningarnefnd leggur jafnframt til að Paul Horner verði kjörinn formaður stjórnar og að Kristín Pétursdóttir verði kjörin varaformaður.

Þá leggur nefndin til að eftirfarandi aðilar verði kjörnir í varastjórn bankans:
-          Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir
-          Einar Hugi Bjarnason

Skýrsla tilnefningarnefndar og upplýsingar um frambjóðendur er meðfylgjandi.

Athugið að störf tilnefningarnefndar og skilafrestur umsókna til hennar takmarka ekki rétt frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar bankans áður en almennur framboðsfrestur rennur út, sem er fimm (5) dögum fyrir aðalfund bankans, þ.e. klukkan 16:00 þann 8. mars 2024.

Tilnefningarnefnd hefur einnig lagt til að kosningu stjórnar bankans verði þannig háttað að aðalstjórn verði skipuð fimm einstaklingum og varastjórn tveimur, lagt fram tillögu um laun og aðrar þóknanir stjórnarmanna. Þessar tillögur hafa þegar verið birtar með tillögum fyrir aðalfund Arion banka hf., sem birtust þann 20. febrúar 2024.

Nánar er fjallað um framangreindar tillögur í skýrslu tilnefningarnefndar.

Bifogade filer

Nyheter om Arion Banki

Läses av andra just nu

Innehåller annonslänkar. Investeringar innebär risk (se här)

Tips: 50% rabatt hos fondroboten Opti

Dags att komma igång med sparande? Fondroboten Opti erbjuder en populär spartjänst som är perfekt för regelbundet månadssparande. Just nu får nya kunder som använder Börskollens unika kampanjkod BORSKOLLEN50 automatiskt 50 % rabatt på Optis avgift i 3 månader!

STÄNG X
Populär sparapp – över 500 000 nedladdningar
Många och höga externa omdömen
Högst grad av diversifiering
Perfekt för regelbundet månadssparande
KOM IGÅNG

Nya kunder som använder Börskollens unika kampanjkod BORSKOLLEN50 får automatiskt 50 procent rabatt på Optis avgift i 3 månader

Om aktien Arion Banki

Senaste nytt