Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa - Börskollen
Börskollen - Aktier, fonder och ekonominyheter

Börskollen

För dig med koll på börsen

Pressmeddelande

Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki lauk í dag útboði á sértryggðu skuldabréfaflokkunum ARION CB 27 og ARION CBI 30 fyrir samtals 6.740 m.kr.

Í flokkinn ARION CB 27 bárust 16 tilboð að fjárhæð 3.480 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 8,75 – 8,87%. Tilboð að nafnvirði 1.860 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 8,77%. Heildarstærð flokksins verður 50.700 m.kr. eftir útgáfuna.

Í flokkinn ARION CBI 30 bárust 23 tilboð að fjárhæð 6.520 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,56 – 3,66%. Tilboð að nafnvirði 4.880 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 3,61%. Heildarstærð flokksins verður 23.860 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 10. júlí 2024.

Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.

Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.

Bifogade filer

Nyheter om Arion Banki

Läses av andra just nu

Om aktien Arion Banki

Senaste nytt