Arion banki: Kaupréttaráætlun starfsfólks - Börskollen
Börskollen - Aktier, fonder och ekonominyheter

Börskollen

För dig med koll på börsen

Pressmeddelande

Arion banki: Kaupréttaráætlun starfsfólks

Í samræmi við starfskjarastefnu Arion banka hf. er í gildi kaupréttaráætlun á grundvelli 10. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 sem samþykkt var á aðalfundi bankans árið 2020 með síðari breytingum.

Kaupréttaráætlunin gildir til fimm ára frá árinu 2021 til ársins 2026 og nær til allra fastráðinna starfsmanna bankans og dótturfélaganna Varðar trygginga hf. og Stefnis hf. og er markmið áætlunarinnar að samþætta hagsmuni starfsfólks við langtímahagsmuni samstæðunnar. Tilkynnt var um framkvæmd kaupréttaráætlunarinnar og breytingar á henni þann 9. febrúar 2021, 18. febrúar 2022, 9. maí 2022, 20. febrúar 2023, 13. maí 2023, 20. febrúar 2024 og 15. maí 2024
  
Í kjölfar nýtingar kauprétta nú í febrúar og gerð nýrra kaupréttarsamninga, eru í gildi kaupréttarsamningar við starfsfólk bankans og dótturfélaga sem ná til samtals 9.255.271 hluta á ári til ársins 2026. Kaupgengi hlutanna skiptist þannig að gildandi eru árlegir kaupréttir að 2.663.874 hlutum á genginu 95,5, 582.669 hlutum á genginu 140,56, að 167.411 hlutum á genginu 143,36 að 4.021.464 hlutum á genginu 153,75, 780.096 hlutum á genginu 155,75 og 1.039.757 hlutum á genginu 174,56. Heildarfjöldi starfsfólks bankans og dótturfélaga með gilda kaupréttarsamninga eru 854. 

Bifogade filer

Nyheter om Arion Banki

Läses av andra just nu

Om aktien Arion Banki

Senaste nytt