Arion banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda ARIONW24 og hækkun hlutafjár
Arion banka hf. (hér eftir „félagið“) bárust tilkynningar um nýtingu áskriftarréttinda ARIONW24 á öðru nýtingartímabili réttindanna sem lauk 8. mars sl. Um er að ræða nýtingu á áskriftarréttindum að samtals 905.897 nýjum hlutum í félaginu.
Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt viðauka nr. 2, sbr. grein 3.5 í samþykktum félagsins, til að hækka hlutafé félagsins í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um 905.897 kr. og mun eftir hækkun standa í 1.461.130.256 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta. Hver hlutur er að fjárhæð ein króna og fylgir hverjum hlut eitt atkvæði.
Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Skattsins og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.