Arion banki hf
Börskollen - Aktier, fonder och ekonominyheter

Börskollen

För dig med koll på börsen

Pressmeddelande

Arion banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda ARIONW24 og hækkun hlutafjár

Arion banka hf. (hér eftir „félagið“) bárust tilkynningar um nýtingu áskriftarréttinda ARIONW24 á fjórða og síðasta nýtingartímabili réttindanna sem lauk 24. ágúst sl. Um er að ræða nýtingu á áskriftarréttindum að samtals 51.087.696 nýjum hlutum í félaginu, að fjárhæð um 6 ma.kr.

Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt viðauka nr. 2, sbr. grein 3.5 í samþykktum félagsins, til að hækka hlutafé félagsins í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um 51.087.696 kr. og mun eftir hækkun standa í 1.513.423.078 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta. Hver hlutur er að fjárhæð ein króna og fylgir hverjum hlut eitt atkvæði.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Skattsins og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Bifogade filer

Nyheter om Arion Banki

Läses av andra just nu

Om aktien Arion Banki

Senaste nytt