Arion banki hf.: Tilkynning til eigenda víkjandi skuldabréfa að fjárhæð 4.800.000.000 kr., ISIN IS0000031334, um nýtingu innköllunarheimildar
Arion banki hf. („bankinn“) tilkynnir hér með öllum eigendum víkjandi skuldabréfa bankans í flokknum: 4.800.000.000 kr. með ISIN IS0000031334, á gjalddaga í janúar 2030 („skuldabréfin“), sem telja til eiginfjárþáttar 2 (e. Tier 2), að bankinn mun, að fengnu samþykki frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands, nýta innköllunarheimild sína skv. gr. 7.6 í skilmálum skuldabréfanna að fullu á fyrsta innköllunardegi, þann 4. janúar 2025.
Í kjölfar uppgreiðslu skuldabréfanna verða þau felld niður (e. cancelled) í samræmi við gr. 7.11 í skilmálum skuldabréfanna.