Arion banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 25. júlí 2024 um framkvæmd endurkaupaáætlunar og 30. ágúst 2024 um stækkun endurkaupaáætlunar. Í 35. viku 2024 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Hlutir í eigu Arion |
26.8.2024 | 09:44:15 | 950.000 | 139,25 | 132.287.500 | 55.636.533 |
27.8.2024 | 09:36:17 | 1.000.000 | 139 | 139.000.000 | 56.636.533 |
28.8.2024 | 09:33:42 | 1.000.000 | 139,75 | 139.750.000 | 57.636.533 |
29.8.2024 | 09:54:45 | 1.000.000 | 140 | 140.000.000 | 84.630.571 |
29.8.2024 | 14:31:20 | 100.000 | 139 | 13.900.000 | 84.730.571 |
30.8.2024 | 09:32:37 | 1.000.000 | 139 | 139.000.000 | 85.730.571 |
30.8.2024 | 12:57:46 | 500.000 | 141 | 70.500.000 | 86.230.571 |
5.550.000 | 774.437.500 | 86.230.571 |
Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keypt SDR | Viðskiptaverð | Kaupverð (SEK) | SDR í eigu Arion |
28.8.2024 | 12:23:40 | 118 | 10,2 | 1.204 | 3.091.250 |
30.8.2024 | 15:08:38 | 397 | 10,4 | 4.129 | 3.091.647 |
515 | 5.332 | 3.091.647 |
Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 35 samtals 57.777.665 eigin hluti og SDR og á bankinn í lok viku 35 samtals 89.322.218 eigin hluti og SDR. Samtals á Arion banki nú sem nemur 5,90% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur Arion banki keypt samtals 16.710.000 hluti og 10.675 SDR í tengslum við áætlunina. Tekið er jafnframt fram að hluti af aukningu eigin bréfa í viku 35 er í tengslum við endurkaup eigin hluta/SDR með útboðsfyrirkomulagi sem lauk þann 29. ágúst 2024 en keyptir voru samtals 25.994.038 hlutir eins og áður hefur verið tilkynnt.
Heimilt er að kaupa allt að 384.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,0254% af útgefnum hlutum og allt að 31.321.362 hluti á Íslandi, eða sem svara til 2,0696% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 2,095% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 50.000.000 kr. í Svíþjóð og 3.888.816.794 kr. á Íslandi (samtals 3.938.816.794 króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 12. mars 2025. Arion banki hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 320/2022 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina eru birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.