Arion banki hf
Börskollen - Aktier, fonder och ekonominyheter

Börskollen

För dig med koll på börsen

Pressmeddelande

Arion banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 25. júlí 2024 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 33. viku 2024 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.

Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Hlutir í eigu Arion
12.8.202413:33:37515.00013368.495.00048.686.533
13.8.202412:50:01520.000132,568.900.00049.206.533
14.8.202414:43:36500.000134,2567.125.00049.706.533
15.8.202414:58:54550.00013674.800.00050.256.533
16.8.202410:37:14550.000139,7576.862.50050.806.533
  2.635.000
356.182.50050.806.533

Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeypt SDRViðskiptaverðKaupverð (SEK)SDR í eigu Arion
12.8.202413:59:4132210,13.2523.086.007
12.8.202413:59:414010,14043.086.047
12.8.202415:20:061110,11113.086.058
12.8.202415:22:397410,17473.086.132
  447
4.5153.086.132


Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 33 samtals 51.257.218 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 33 samtals 53.892.665 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 3,685% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 7.280.000 hluti og 5.160 heimildarskírteini.

Heimilt er að kaupa allt að 384.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,026% af útgefnum hlutum og allt að 18.848.600 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,289% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,315% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 50.000.000 kr. í Svíþjóð og 2.450.000.000 kr. á Íslandi (samtals 2,5 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 12.mars 2025. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
 
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 320/2022 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina eru birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.

Bifogade filer

Nyheter om Arion Banki

Läses av andra just nu

Om aktien Arion Banki

Senaste nytt