Arion banki hf
Börskollen - Aktier, fonder och ekonominyheter

Börskollen

För dig med koll på börsen

Pressmeddelande

Arion banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 25. júlí 2024 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 32. viku 2024 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.

Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Hlutir í eigu Arion eftir viðskipti
6.8.202414:57:10415.00013254.780.00046.646.533
7.8.202409:37:11525.00013369.825.00047.171.533
8.8.202409:50:02500.00013266.000.00047.671.533
9.8.202412:21:14500.000131,565.750.00048.171.533
  1.940.000
256.355.00048.171.533

Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeypt SDRViðskiptaverðKaupverð (SEK)SDR í eigu Arion eftir viðskipti
7.8.202411:23:217010,057043.081.042
7.8.202414:04:014.37210,0543.9393.085.414
7.8.202415:02:3711710,051.1763.085.531
7.8.202415:09:33110,05103.085.532
8.8.202415:24:3228102803.085.560
9.8.202414:27:11125101.2503.085.685
  4.713
47.3583.085.685


Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 32 samtals 49.312.505 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 32 samtals 51.257.218 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 3,505% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 4.645.000 hluti og 4.713 heimildarskírteini.

Heimilt er að kaupa allt að 384.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,026% af útgefnum hlutum og allt að 18.848.600 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,289% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,315% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 50.000.000 kr. í Svíþjóð og 2.450.000.000 kr. á Íslandi (samtals 2,5 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 12.mars 2025. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
 
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 320/2022 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina eru birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.

Bifogade filer

Nyheter om Arion Banki

Läses av andra just nu

Om aktien Arion Banki

Senaste nytt