Arion banki hf.: Niðurstaða skiptiútboðs sértryggðra skuldabréfa
Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 2.300 m.kr. að nafnvirði í flokknum ARION CBI 25.
Í tengslum við útboð Arion banka í gær á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 28 bauðst eigendum flokksins ARION CBI 25 að selja bréf sín á fyrirframákveðna hreina verðinu 99,2786 gegn kaupum í útboðinu. Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 2.300 m.kr. að nafnvirði í flokknum ARION CBI 25.
Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 9. október 2024.
Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu.