Arion banki: Gerð kaupréttarsamninga vegna kaupaukakerfis ársins 2024
Börskollen - Aktier, fonder och ekonominyheter

Börskollen

För dig med koll på börsen

Pressmeddelande

Arion banki: Gerð kaupréttarsamninga vegna kaupaukakerfis ársins 2024

Í samræmi við starfskjarastefnu Arion banka er í gildi kaupaukakerfi fyrir starfsfólk og stjórnendur bankans. Á grundvelli kaupaukakerfis Arion banka, vegna ársins 2024, hefur bankinn nú gengið frá samningum um kauprétti að samtals 2.450.741 hlutum í félaginu, við hluta af starfsfólki bankans.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Grunnverð er 175,5 á hlut sem er gengi hlutabréfa í bankanum á þeim degi er ársreikningur fyrir árið 2024 var samþykktur og er það ávaxtað yfir ávinnslutíma á 5,5% ársvöxtum og skal verðið m.a. leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að vera ákveðnar á ávinnslutíma.
  • Kaupréttarsamningar vegna 832.500 hluta eru með þeim hætti að 1/2 af kauprétti ávinnst á þremur árum frá útgáfu og eftirstöðvar ávinnast á fjórum árum (fimm ár fyrir bankastjóra og starfsfólk sem heyra beint undir bankastjóra) frá útgáfu. Nýtingartímabil er í hvort skipti 20 virkir dagar eftir birtingu ársreiknings. Ef hluti kaupréttar er ekki nýttur á viðkomandi tímabili fellur hann niður.
  • Kaupréttarsamningar vegna 1.618.241 hluta eru með þeim hætti að allur kaupréttur ávinnst á fjórum árum (fimm ár fyrir bankastjóra og starfsfólk sem heyra beint undir bankastjóra) frá útgáfu. Nýtingartímabil er 20 virkir dagar eftir birtingu ársreiknings. Ef kaupréttur er ekki nýttur á nýtingartímabili fellur hann niður.
  • Kaupréttir falla almennt niður ef ráðningarsambandi er slitið.
  • Við tilteknar aðstæður er félaginu heimilt að afturkalla kauprétti í heild eða að hluta í samræmi við reglur félagsins um kaupaukakerfi.
  • Virði kauprétta var reiknað skv. reiknilíkani Black-Scholes af óháðum sérfræðingi.

Heildarfjöldi útgefinna kauprétta samkvæmt framangreindri útgáfu nemur um 0,16% hlutafjár í félaginu.

Upplýsingar um forsendur við verðlagningu kauprétta skv. kaupaukakerfi fyrir árið 2024 og helstu skilmála þeirra er að finna hér.

Upplýsingar um viðskipti stjórnenda með framangreinda kauprétti og afhendingu hlutabréfa eru í viðhengi:

Bifogade filer

Nyheter om Arion Banki

Läses av andra just nu

Om aktien Arion Banki

Senaste nytt